Mitt er valið :)

Jaja ein vika formlega búin í stjörnuformi mér líður ofsalega vel rúmt 1 kíló niður hélt kannski að þau yrðu fleiri en það er líka það sem ég hef verið að klikka á þegar ég hef tekið mig á sjálf í gegnum tíðina, ég hef ekki þolinmæði fyrir viktinni, það er alveg á hreinu að það er ekki jafn auðvelt að grennast og það var að fitna.

Nýr matseðill kom fyrir þessa viku sem ég er rosa spennt fyrir við fáum fullt af tillögum sem við getum raðað saman í 1500 kaloríu dag.

Æfingarnar hjá Önnu er svakalegar svitinn rennur af mér og ég fæ pínu performance kvíða áður en ég fer og hugsa.... æ ég get ekki gert armbeygjur, ég get ekki gert planka lengi og ég get ekki hjólað standandi lengi en eftir smá stund inni í sal með Önnu fer kvíðinn út um gluggann og hugsunin MITT ER VALIÐ verður allsráðandi :)

Myndirnar úr undirfata myndatökunni eru byrjaðar að koma inn og ég er alveg svakalega stressuð fyrir því omg ég fer varla í sund og ef ég geri það þá nota ég börnin mín sem skjöld. En þetta verður í síðasta skipti sem ég mun skammast mín fyrir líkama minn því eftir 12 vikur verð ég komin á það stig að ég mun halda áfram og verð mjög skömmu seinna farin að spranga um á bikiní í Laugardalslauginni  :)

 Over and out 

Mrs Thin 2 be aka Dagmar

xxx 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

úúúfff ég finn til með þér hvað varðar bikinímyndatökuna :S Það yrði stærsta hindrunin fyrir mig... you GO girl!!!

Linda Björk (IP-tala skráð) 20.9.2011 kl. 07:13

2 identicon

Dagmar, mér finnst þú ÆÐISLEG!!

Gangi þér SUPER vel næstu vikurnar - hlakka til að fylgjast með þér ;)

Erna Hlíf (IP-tala skráð) 20.9.2011 kl. 08:58

3 identicon

HELL YEAH!!! :-)

Eva Margrét (IP-tala skráð) 20.9.2011 kl. 11:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Dagmar Ásmundsdóttir

Höfundur

Dagmar Ásmundsdóttir
Dagmar Ásmundsdóttir
31 árs, gift, 3ja barna móðir með línurnar í ólagi en fékk ásamt 4 öðrum svakalegt tækifæri að koma þeim í lag :) og ætla að gera það með tormpi :) er rosa spennt en líka ofsa hrædd. kv Mrs thin 2 be aka Dagmar :)
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband